Lulu
17.04.2008 22:02:27 / lolita

some some

voða lítið búið að gerast hjá mér, ég er bara að læra á fullu í prófum og hafa gaman af lífinu svo er ég að reyna að hreyfa mig nóg gengur ágætlega en mætti samt ganga betur :haha: En já ég er að leita mér að stað til að flytja á er eiginlega búin að finna hann og er byrjuð að pakka, vegna þess að ég flyt héðan í enda maí. Svo í dag á mamma afmæli, hringdi til að óska henni til hamingju. Konan bara orðin 42 ára :p fór líka uppá slysó því ég á vini sem eru alveg jafn klaufskir og ég, vinkona mín datt niður stigan heima hjá sér og ég fór með hana til að vera viss um að allt væri í lagi :) Svo á hún Anna afmæli á morgun og verður 21 árs :) Er að spá með að fara með henni á djammið til að fagna...

En já meira seinna ...


» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2008 12:42:22 / lolita

Annað líf :p

Jæja þá er maður kominn aftur, búin að vera lengi frá 8) En já svo ég segi aðeins frá hvernig síðasta ár er búið að vera ...
Ég kynntist stelpu sem heitir Anna og hún flutti inn til mín og Ernu, svo kynntist ég og anna 2 strákum og eitthvað meira .. tíhí. En Erna flutti aftur til foreldra sinna, ég og anna fórum svo að vinna í álverinu en það gekk ekki alveg, þannig að ég fór til læknis og hann sagði mér að ég mætti bara ekki vinna útaf bakinu á mér og ég var ekki beint sátt með það en ok ég varð bara að hlíða. Svo síðasta sumar þá fengum við okkur hunda þessar litlu rúsínur.
Ég hætti með mínum kærasta en anna var þá já ....
svo kynntist ég yndislegum strák sem ég er búin að vera með í 7 mánuði núna og ég er að fara að flytja en ég bara veit ekki hvert alveg. En já mitt mesta stolt er þegar ég var í NTV - Nýji tölvu og viðskiptaskólinn... að ég dxaði í mínum hóp með 9,21 eða 9,12 sem er mjög gott, ég er allavega mjög sátt með það. Svo núna er ég í FB og er svona ekki beint að nenna því það er á kvöldin, en ég stefni í það að fara í dagskóla eftir sumarið, já svo byrjaði ég líka á reykjalundi í des en hefur ekkert gengið of vel hingað til en núna er bara að taka sig til og standa allt í botn :d :d Ég er bara að vona að allt gangi eftir og að ég viti hvert ég er að fara að flytja ;)

meira seinna ;)



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.02.2007 16:42:30 / lolita

:) :)

Jæja þá er maður kominn til baka úr bústaðnum og er alveg að drepast úr þreytu en það var gaman og mikið drukkið ;) Voða sætir strákar og skemmtilegar stelpur ;) hehe btw við vorum 3 stelpur ;) Bara betra... Fórum í sund í seljarlandslaug og svo þegar við vorum að fara heim fórum við að skoða seljarlandsfoss, skógarfoss og paradýsarhelli... Þetta var ekkert smá flott að skoða náttúruna, enda er líka búið að plana að fara hringinn og skoða náttúruna ;) Það verður fjör ;););) En allveg kem með meir aslúður og myndir úr bústaðnum bráðum ;) c'ya

» 2 hafa sagt sína skoðun

08.02.2007 14:44:06 / lolita

:)

Jæja þá er ég loksins búin að koma mér fyrir og farin að vinna á fullu. Ég er búin að vera á lausu síðan í okt og það er æðislegt... Var komin með leið á kallinum. En núna er ég flutt út frá mömmu og bý með vinkonu minni í 104. Það er ekker smá notalegt að búa "einn" semsagt engir foreldrar, allvega þá ætla ég aðeins að fara að laga síðuna núna og vera dugle við að blogga... sérstaklega fyrir þig Hrefna mín ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2006 12:03:17 / lolita

Spánn!

Það var bara gaman úti, gaman að fylgjast með hvað Hrefna, Brandur og Haukur voru klikkuð!!

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.07.2006 23:41:40 / lolita

Spánn here we come

Jæja þá er það að skella á ,  Var að panta mér ferð til Salou á Spáni í dag, er að fara á morgun, flug um kvöldmat, kem aftur á þrið. Hlakkar mjög til fer með Hrefnu , Hauk frænda hennar og Brand sem er að vinna með okkur. Það var bara hringt í mig og ég ákvað að skella mér mér! Sem ég sé ekkert eftir, þótt það kosti þá er mér alveg sama, þetta er það eina sem ég fer út í ár! Á reyndar eftir að sakna kallsins míns þegar ég fer út! En svo knúsa ég hann líka mikið þegar ég kem heim! fæ ekkert að hitta hann á morgun nema kannski í nokkrar mínútur :( En maður verður að fórna einhverju, hann er samt mjög ánægður með að ég sé að fara út að skemmta mér :) Ég er svo ánægð í rosa góðu skapi líka, set kannski inn einhverjar myndir þegar mar kemur að utan ;) weeeee...... bléblé


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.06.2006 16:55:57 / lolita

...

góð helgi djammað í 3 daga og haldið uppá afmælið með vinkonu minni sem áttia afmæli 17.júní ;) Geðveikt djamma hjá henni, verst bara hvað ég entist "lengi" hehe.... Svo var ég líka að halda uppá 20 afmælið mitt, átti afmæli 15. júní... þannig ég er líka orðin stór stelpa ;) *stolt* :) Úff ekki gaman að vinna, er búin að vera að vinna öll kvöld... nema þegar ég var veik.. varð veik á laugardag.... Ég er samt bara að gera þetta því það er svo gott að vera með pening sérstaklega þegar ég er að fara fara í 4 daga sumarfrí 1 helgina í júlí... !!! Loksins fyrsta helgina (fyrir utan 17 -18 jún) sem ég er í fríi síðan í byrjum maí... jæja ég ætla að láta þetta gott heita... reyni að vera dugleg að blogga, sérstaklega fyrir þig Hrefna mín ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 12:45:39 / lolita

...

Það var rosalega gaman í gær allir að senda manni sms og óska manni gleðilega páska. Það er reyndar fínt að páskarnir eru búnir eða svona eiginlega, Ég er að missa vitið hérna langar svo að fara til Reykjavíkur, svo á mamma líka afmæli í dag og mig langar að fara að hitta hana! Hún er einmitt að fara að halda kaffi fyrir fjölskylduna og ég verð ekki þar :( Hún er orðin 40 þannig það er stórafmæli ...

Er bara að vona kærastinn minn fari að redda fari fyrir okkur suður, ég vil fara heim í dag, en hann er bara latur og leggur það í frest að tala við fólk og ath hvenær það fer og hvort það sé laust með þeim! Við getum allaveg ekki farið með Gústa því hann fer ekki fyrr en um næstu helgi og það er of seint því skólinn byrjar á fimmt eða föst.

pfff... mér leiðist og það er ekkert að gera hérna, allir að fara og sumir eru ekkert skemmtilegir, ekki það að hann eigi að skemmta mér en hann má nú alveg sýna það að maður sé til!!!! urg!

jæja ætla að fara að bögga hann og reyna að koma honum á lappir!! se ya


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.04.2006 16:26:09 / lolita

úff þynka

úff það var drukkið í gær, það var roda gaman á riis ég man samt ekki allt sem gerðist, en ég man samt að ég fékk myndavélina hjá Helga og var aðeins að missa mig í að taka myndir, það var geðveikt gaman, Helgi náði líka fyrstu myndinni af mér og kallinum saman! Smá flipp tekið í gær, var aðeins að flassa í cameruna en samt ekkert mikið bara að sína það helsta. Hey hverjum finnst ekki gaman að sjá Brjóst á kvennmanni. Svo var einnhver ógeðslegur kall sem var með andlitið næstum ofaní brjóstunum á mér!!! Þá var ekki gaman það er eina sem ég var ekki sátt með allt kvöldið, Ég hitti fullt af nýju fólki sem ég hafði aldrei talað við áður, En ég er samt sátt með kvöldið, stakk reyndar kallin af en ekki hann mig... heheh ég er góð :) Var skömmuð í gær fyrir að tala of mikið í síman við Hrefnuna mína, það var rosa gaman að tala við hana... Gústi fór aðeins að kommenta á hvað ég var að tala lengi :P, ég allaveg kláraði batteríi á mínum síma og hélt svo áfram að tala í hans síma... Hann leyfði það þannig það er ok! Við löbbuðum á riis í gær, það var fínt mættum einhverjum á leiðinni, ég veit reyndar ekkert hverjir það voru, þannig ég settist niður og varð blaut á rassinum því það er snjór hérna (ég sem hélt að það væri að koma sumar) :lol::lol::lol::lol:

Ég er svo dugleg að ég var líka smá þunn í dag, ég sem ætlaði bara að vera stillt í gær og drekka lítið, það er erfitt þegar mar þarf ekki að standa í veseninu í reykjavík, heldur bara labba allstaðar á milli, ekki það að mar nenni að labba niðrá höfn eða að frystihúsinu, mar gerir það samt þegar mar er að drekka heheheh :klikk:

weee stutt í páskan, voða gaman, hey mamma mín á afmæli á mánudaginn, verð að muna að hringja í hana og óska henni til hamingju. úff jæja núna ætla að ég fara ap horfa meira á sjónvarpið með tengdó, reyndar þá bara með tengdapabba, því mamma kallsins er veik (Ekki Gott) Ég var nebbla veik og smitaði kallinn og hann smitaði múttu sína! En allaveg þá eru allir að hressast hérna, allavega kemst mar að því á morgun þegar mar er laus við þynnkuna!!!!! :klikk:

Ætla stoppa núna áður en ég skrifa alla ævisöguna!! 8)8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.04.2006 17:03:35 / lolita

Föstudagurinn Langi

Vá hvað dagurinn er búinn að vera lengi að líða :/ Allaveg þá fór ég ekkert seint að sofa í gær Ég Birgir Gústi Aggi og Hildur vorum bara að horfa á mynd í gær en ég og Hildur vorum kannski aðeins of þreyttar og fórum bara að sofa snemma. Vaknaði í mörgun og byrjaði að horfa á hm í fótbolta síðan árin 1994 og 98 það var bara svona til að láta tíman líða. :|

Eftir það fór ég með Birgi, Gústa, Agga og Kolla í fótbolta út í skóla, það var fínt. Langaði reyndar ekkert að vera með svo ég fór bara og settist í rólurnar meðan þeir voru að sparka í tuðruna, fór reyndar með þeim í vítaspyrnukeppni, Aggi vann hana 4 sinnum og er svaka "stoltur" hehe. :lol:

Er að fara að horfa á The Decent með tengdapabba á meðn kallinn lærir meira, hann verður víst að læra þótt hann sé í fríi, svoleiðist er það þegar mar er í skóla! :S

vo fer maður á Cafe Riis í kvöld það verður fínt, ætla að reyna að passa kallinn svo hann verði ekki ofurölvi, þá verður hann bara ahndónýtur á morgun, Ég þarf nebbl að reka á eftir honum að læra á morgun þannig hann fær ekkert að liggja í þynnku! :lol::lol::lol: múhahahah

Voða góð við kærastan. Ég er samt alveg að verða gráhærð hérna, var að spá í að fara bara ekkert út í kvöld því mér finnst ekkert gaman að djamma bara með strákunum Hildur er náttla alltaf bara að vinna á riis fyrir foreldrana! Vá hvað ég væri ekki til í að foreldrar mínir væru með "skemmtistað" Þetta er reyndar eini staðurinn sem er hægt að fara á nema þegar bragginn er opinn þá er reyndar svona böll 16 + það er ekkert eins gaman, það er kannski fínt stundum en ekki alltaf.!!

ætla stoppa núna og fara að liggja í leti fyrir framan tv-ið :o


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 17:14:21 / lolita

úff

Jæja þá er maður komin til Hólmavíkur til að slappa af í páskafríinu, ekki að ég sé ekkert búin að slappa af síðustu daga. Ein heima og kallin útá landi, það var voða næs. :lol: Samt búið að vera gaman síðustu daga, var í fermingu hjá litla bró á sunnudaginn geðveikt. Hann fékk ferð til Bandaríkjana og miða á körfuboltaleik... Hann er að fara út núna á laugardaginn... úff hvað ég öfunda hann, ég væri sko alveg til í að fara til Bandaríkjana og stússast eitthvað. Er líka búin að vera að halda greyið Hrefnu félagskap, hún nýtur þess að taka allan pirring út á mér, sko hvað ég er góð vinkona. Hún á svolítið erfitt með vinnuna, mikið að gera og fólk að beila ekki gaman að vera yfirmaður á svona stað.

Vá hvað ég er fegin að vera komin úr bænum í nokkra daga, það hefði reyndar verið geðveikt að taka Hrefnu bara með leyfa henni aðeins að slappa af!" Henni veitir sko ekki af. En nei ég er bara ein hérna heima hjá tengdó að láta mér leiðast því kallinn er alltaf að læra, það verður reyndar fjör um helgina, þótt það séu að koma páskar þíðir ekki að það verði ekkert djamm. Það verður sko skemmt sér mjög vel (vona ég)

8) Maður er svo svalur, ekkert að gera, bara sitja inni í tölvunni eða fara út og láta sér leiðast, voða lítið af fólki á mínum aldri hérna, allavega ekkert sem ég þekki nema ein og hún er örugglega að vinna eða þá bara heima, hún er jú að fara aðeiga í júní... það er bara gaman fyrsta barn hennar og kærasta/unnusta hennar. Ég er fegin að vera ekki ólétt núna, það væri svolítið mikið vesen, því ég er bara með lítið herbergi og maður þarf líka að hafa eitthvað á milli  handanna ef maður er að fara út í svona! Ekki það að ég væri ekki til í að eiga eitt lítið :P

allaveg þá ætla ég að láta þetta gott heita í bili :o:o:o


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.12.2004 21:18:01 / lolita

Jæja.....

er bara að taka smá flippa hérna með Söndru minni ;) Erum báðar svo þreyttar að það er ekki heilbrigt... vorum að koma frá Akureyri..... það var bara gaman þar  :D !! en allavega c'ya :klikk:

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 4328
Dagsetning
9. febrúar 2012
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 969 dögum
Ég 23 ára